Íþróttaleysi hjá Almari og sagan um Rauðhettu...

Jæja þá er komið að vikulegu bloggi mínu um börnin. Vikan er búin að vera fín, tíminn líður hratt og það er í rauninni alltaf helgi - ekki leiðinlegt.

Eins og flestir vita var Almar Þór í íþróttum á hverjum degi eftir skóla og nú er það allt búið í bili. Ég finn alveg svakalega fyrir því, því nú á hann erfitt með að sofna á kvöldin, þó hann sé á fullu allan daginn. Honum líður greinilega mjög vel þegar hann er líkamlega vel þreyttur.Sleeping

Berghildur Björt er svolítið svekkt yfir að vinir hennar, Ársæll, Tristan og Aron Óli, eru komnir yfir á Bláagarð en ekki hún. Ég held að það sé bara fínt fyrir hana að leika líka við einhverja aðra og viti menn hún byrjuð að velja sér að fara í pils og kjólaWink Ýmislegu átti ég von en .....

Í gærkvöldi lágum við BBE upp í rúmi og ég sagði henni söguna um hana Rauðhettu. Eitthvað gekk mér erfiðlega að segja hana því hún var í því að stoppa mig og mótmæla, sagði " nei mamma, þetta er ekki svona". Þetta fór ekki að ganga fyrr en ég sagði að mín saga hefði gerst á sunnudegi en sagan hennar á mánudegi. "óó - ég skil" sagði þá BBE og ég fékk að halda áfram með söguna Smile

E.s. hvernig væri nú að kvitta fyrir sig í athugasemdum eða gestabók?Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hahahaha... börn eru svo skemmtileg á þessum aldri!

Helga pelga (IP-tala skráð) 26.5.2007 kl. 12:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Í Laugabóli á Laugarbakka...

Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir
Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir

... búa Guðbjörg Inga, Almar Þór og Berghildur Björt. Einnig eru Almar og Berghildur Björt svo heppin að eiga einn stóran bróður sem heitir Daníel Þór.

271 dagur til jóla

Bloggvinir

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • kettlingar 2008 011
  • kettlingar 2008 014
  • kettlingar 2008 016
  • kettlingar 2008 014
  • kettlingar 2008 012

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband