Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Jæja þetta tókst, kl. 4 á aðfangadag pakkaði ég inn síðustu pökkunum. Reyndar komust nokkrir pakkar og kort ekki á pósthúsið fyrir en á aðfangadag og þar sem mér finnst ólíklegt að kallað hafi verið út aukalið til að koma mínum sendingum til skila eru einhverjir, því miður, sem fá ekki sendingu frá mér fyrr en milli jóla og nýárs. Blush En það stendur til að gera betur næsta ári... Kannski að ég byrji bara á þessu núna í janúar Wink.

Gleðileg jól og farsælt komandi ár Kissing


5 dagar til jóla

Ég er hugsum að taka teljarann af blogginu (teljarinn sem telur niður dagana til jóla) því ég held að hann telji of hratt niður. Í var svo montin í nóvember því þá var ég búin með svo mikið - næstum því búin að kaupa allar jólagjafirnar, næstum því búin að taka allt í gegn, aðeins byrjuð á að búa til jólakortin, byrjuðá því að baka (það reyndar mistókst þá) o.s.frv. Þetta leit sem sagt allt mjög vel út en hvað gerist svo...... ég setti teljarann inn á bloggið og viti menn það er kominn 19. desember og ég er enn í sömu sporum Errm.... (reyndar baksturinn kominn aðeins á betri veg).  Ég ætlaði svo að vera í góðum málum núna og vera búin að öllu mjög snemma en...  líklega kemst ég ekki í "jólafíling" nema að vera alveg á síðustu stundu..... það er líklega málið.... við skulum alla vega segja það!!Wink

 

Ég læt hér fylgja mynd af flottri auglýsingu sem ég sá í Tékklandi í sumar. Flott?

Vínarferð - des 2007 023

Áskorun - jólabakstur...

Eins og ég hef áður komið að þá hefur smákökubakstur gengið mjög erfiðlega í gegnum árin en nú varð ég fyrir áskorun.... Sonur minn kom heim í gær með uppskrift úr heimilisfræði þar sem hann hafði verið að baka súkkulaðibitasmákökur, hann vildi endilega baka fyrir mig sem hann og gerði. Viti menn þarna komu þessar frábæru smákökur. Ég verð að viðurkenna að það kom smá blendin tilfinning upp því ég varð náttúrlega mjög stolt af litla 7 ára gamla bakaranum en mjög ósátt með smákökugerð mína hingað til - þetta varð að hálfgerðri áskorun.

Jæja þannig að nú gagnast ekkert að vera með einhverja "Jóa Fel stæla" (slumpa í uppskriftir)þannig að ég kom við í Kaupfélaginu, keypti nýtt batterí í eldhúsvogina mína (skoðaði samt nýjar gerðir af eldhúsvogum - kannski væru þær nákvæmari en mín!!), keypti nýjar mæliskeiðar + mál og byrjaði að baka. Ég ákvað að fara núna MJÖG nákvæmlega eftir uppskriftinni og ... viti menn. Út úr ofninum komu þessar líka frábæru smákökur. Upp í huga minn kom skemmtilega lagið úr teiknimyndinni um hana Dóru - "We did it" og ég er enn með það á heilanum Grin

Almar smakkaði eina köku og .... jú þetta var bara alveg ágætt. Nú er bara að kíkja í kaffi og smakka á smákökunum mínum - mín er komin í gírinn.


Fíasól komin með kettlinga

Vínarferð - des 2007 267Hún Fíasól er búin að eignast tvo sæta kettlinga. Við vissum nú að hún væri kettlingafull en eitt kvöldið læddist hún upp í rúm til Almars Þórs og eignast kettlingana. Almar tók ekki eftir neinu og daginn eftir fór Berghildur (þá orðin veik) upp í rúmið hans A til að kúra og bað mig um að laga sængina fyrir sig. Ég tók sængina en þá heyrði ég bara væl og viti menn þarna lágu tveir sætir kettlingar. Mamman er búin að vera mjög upptekin við að sinna frumburðum sínum ...já þetta er nú aldeilis spennandi blogg!!!

Jæja Helga nú er ég búin að blogga þrisvar sinnum á fjórum dögum, hvenær ætlar þú að taka mig af "óvirka listanum" þínum? 


Berghildur Björt í fyrsta skipti með flensu...

Vínarferð - des 2007 227Hún Berghildur Björt er veik, þetta er í fyrsta skipti á æfinni sem hún fær flensu! Í fyrrinótt fékk hún hita en var nú hress í gær. Hún valhoppaði um og tilkynnti öllum sem komu að hún væri veik og færi ekki í leikskólann á morgun (í dag) - hún sagði þetta sérstaklega oft við Almar sem var nú eitthvað að reyna að sýna móður sinni að hann væri með kvef og líklega væri nú best fyrir hann að vera líka heima. En mikið finnst henni þetta erfitt núna, liggur í sófanum með 39 stiga hita og höfuðverk. Sofnar í nokkrar mínútur og vaknar upp ferlega svekkt að hún skuli enn vera veik. Ég skil hana vel - þetta er ekki skemmtilegt.


Jólabakstur hvað.....

Jæja, nú ætla ég að koma mér upp úr þessari svakalegri bloggleti. Errm 

Nú erum við þrjú bara í rólegheitunum og reynum að koma jólaskrautinu upp. Mér finnst það bara notalegt. Stefnan er líka að reyna að baka eitthvað meira, en ég skil ekki hvers vegna jólakökubakstur gengur alltaf svona illa hjá mér. Ég held að ég hafi bakað eitthvað á hverju einasta ára en á hverju einasta ári hefur þetta mistekist !!!! Ég held að þetta séu uppskriftirnar. Vinkonur mínar hópast til mín með einfaldar uppskriftir en...  Frown ég er alveg handviss um að þær séu búnar að breyta þeim og eru nú einhvers staðar saman að drekka heitt kakó, borða ljúfengar smákökur (með réttri uppskrift) og öskrandi af hlátri .... ætli það sé kannski upptökuvél hér í leyni??? Ætla að skoða þetta nánar


Í Laugabóli á Laugarbakka...

Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir
Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir

... búa Guðbjörg Inga, Almar Þór og Berghildur Björt. Einnig eru Almar og Berghildur Björt svo heppin að eiga einn stóran bróður sem heitir Daníel Þór.

270 dagar til jóla

Bloggvinir

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • kettlingar 2008 011
  • kettlingar 2008 014
  • kettlingar 2008 016
  • kettlingar 2008 014
  • kettlingar 2008 012

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband