8.12.2007 | 13:47
Jólabakstur hvað.....
Jæja, nú ætla ég að koma mér upp úr þessari svakalegri bloggleti.
Nú erum við þrjú bara í rólegheitunum og reynum að koma jólaskrautinu upp. Mér finnst það bara notalegt. Stefnan er líka að reyna að baka eitthvað meira, en ég skil ekki hvers vegna jólakökubakstur gengur alltaf svona illa hjá mér. Ég held að ég hafi bakað eitthvað á hverju einasta ára en á hverju einasta ári hefur þetta mistekist !!!! Ég held að þetta séu uppskriftirnar. Vinkonur mínar hópast til mín með einfaldar uppskriftir en... ég er alveg handviss um að þær séu búnar að breyta þeim og eru nú einhvers staðar saman að drekka heitt kakó, borða ljúfengar smákökur (með réttri uppskrift) og öskrandi af hlátri .... ætli það sé kannski upptökuvél hér í leyni??? Ætla að skoða þetta nánar
32 dagar til jóla
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vúhú! Og það varð blogg! Gott að sjá að þú ert farin að blogga aftur. En það er opinber yfirlýsing að fólk þarf að blogga amk tvisvar (eða þrisvar) á einum mánuði til að geta tekið af sér "óvirk síða" stimpilinn og þar með komist á listann á virka bloggara. Ha? Já eða eitthvað. Ég breyti þessu við tækifæri :-) og talandi um tækifæri, hver veit nema ég bara hringi í þig við tækifæri líka.
Helga Hinriks (IP-tala skráð) 8.12.2007 kl. 14:53
Jæja ég skal reyna að gera betur Helga en ég held líka að það sé kominn tími á að ég prófi að hringja í þig!!! Kannski gengur það upp :)
Kv.
Guðbjörg
Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir, 9.12.2007 kl. 11:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.