13.12.2007 | 21:57
Áskorun - jólabakstur...
Eins og ég hef áður komið að þá hefur smákökubakstur gengið mjög erfiðlega í gegnum árin en nú varð ég fyrir áskorun.... Sonur minn kom heim í gær með uppskrift úr heimilisfræði þar sem hann hafði verið að baka súkkulaðibitasmákökur, hann vildi endilega baka fyrir mig sem hann og gerði. Viti menn þarna komu þessar frábæru smákökur. Ég verð að viðurkenna að það kom smá blendin tilfinning upp því ég varð náttúrlega mjög stolt af litla 7 ára gamla bakaranum en mjög ósátt með smákökugerð mína hingað til - þetta varð að hálfgerðri áskorun.
Jæja þannig að nú gagnast ekkert að vera með einhverja "Jóa Fel stæla" (slumpa í uppskriftir)þannig að ég kom við í Kaupfélaginu, keypti nýtt batterí í eldhúsvogina mína (skoðaði samt nýjar gerðir af eldhúsvogum - kannski væru þær nákvæmari en mín!!), keypti nýjar mæliskeiðar + mál og byrjaði að baka. Ég ákvað að fara núna MJÖG nákvæmlega eftir uppskriftinni og ... viti menn. Út úr ofninum komu þessar líka frábæru smákökur. Upp í huga minn kom skemmtilega lagið úr teiknimyndinni um hana Dóru - "We did it" og ég er enn með það á heilanum
Almar smakkaði eina köku og .... jú þetta var bara alveg ágætt. Nú er bara að kíkja í kaffi og smakka á smákökunum mínum - mín er komin í gírinn.
32 dagar til jóla
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já, sko! Ef ég byggi á Laugarbakka þá myndi ég geta komið yfir til þín í kaffi og smákökur. Þetta er bara hlutur í lífinu sem við verðum að sætta okkur við, að við munum... mjög líklega... ófáar stundir (er að forðast að segja aldrei) búa saman á LAUGARBAKKA! Hahahahahahaha
Helga pelga (IP-tala skráð) 13.12.2007 kl. 22:13
Ha ha ha ha ha Ertu að reyna að drepa mig ?!! Eina sem þarf til þess að þú komir á Bakkann er eitt gott símtal og málið er dautt Vittu til, plús það að smákökurnar er mjöööööög góðar, kaffið hjá mér ekki verra og þú veist að hláturinn á Bakkanum lengir lífið....
Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir, 13.12.2007 kl. 22:32
Nú er ég búinn að prófa að búa á Laugarbakkanum í 6 vikur og það var nú bara fínt. Ég var reyndar ekki mikið þar heima..... reyndar bara eiginlega ekki neitt nema þegar ég kíkti við í glugganum hjá Brynju og Gauja.... spurði hana Brynju meira að segja hvað væri í sjónvarpinu (með sms-i) en fékk samt ekki svar fyrr en daginn eftir.... svo rólegt er lífið á Bakkanum
Palli (IP-tala skráð) 13.12.2007 kl. 23:23
Já Palli minn, við látum nú ekki græðgisvæðinguna hafa áhrif á okkur ... svo rólegt er hjá okkur ... eða þannig
Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir, 14.12.2007 kl. 12:19
Flott síða hjá þér essskkan....Ekki spurning að við stórfjölskyldan kíkjum í kaffi og kökur þegar heilsan batnar...Sætir kettlingar btw. Kveðja Sól
sól (IP-tala skráð) 16.12.2007 kl. 11:23
Minntist einhver á kökur ?? mmmm njom njom
Sæa (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 23:02
Flottust Guðbjörg! Er stolt af þér að takast á við smákökupúkann í sjálfri þér. Ég segji nú bara Jói Fel hvað! Guðbjörg rokkar!
Stella Levy (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 22:38
Sæl mín kæra! Fann loksins þessa síðu þína. Flott síða og kökurnar enn betri....njomm njomm:) Hvernig ferðu að núna þegar dularfullu mánudagsheimsóknirnar eru fyrir bí??? híhíhí kv. Kiddý og co
Kiddý (IP-tala skráð) 19.12.2007 kl. 13:21
Já Stella mér líður sko vel með að hafa tekið á þessu en ég hef nú meiri áhyggjur að allt sé að fyllast af smákökum!!!! Það verður nú gaman að heimsækja mig í júni... enn að taka upp smákökuboxið
Kiddý mín hvað veist þú um það að heimsóknunum sé lokið??? já Kiddý mín það er ýmsilegt sem þú veist ekki,....... Múhahaha og aftur múhahaha
Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir, 19.12.2007 kl. 15:01
Já þið eruð svo velkomnar í kaffi og smákökur
Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir, 19.12.2007 kl. 15:02
Þú líka Sæa
Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir, 19.12.2007 kl. 15:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.