6.5.2007 | 11:30
Hlaupabóla.....
Ég er svo heppin að börnin mín eru afskaplega hraust. Almar Þór hefur ekki misst dag úr skóla vegna veikinda (2x hálfan dag þegar hann var í leikskóla) og ég hef 2x þurft að ná í Berghildi Björt úr leikskóla vegna magaverkja. Þar af leiðandi álíta þau að veikindi séu frekar spennandi kostur- liggja upp í sófa og horfa á vídeo
. Í gær voru þau, ásamt fleirum börnum að leika sér út í garði og þau fara að tala um hlaupabólu... BBE spyr hvernig maður fái hlaupabólu og AÞE hélt því fram (til að stríða systur sinni) að til þess þyrfti að hlaupa mjög mikið og taka góða spretti. BBE var ekki lengi að fara af staða og hljóp eins hratt og hún gat, upp og niður götuna - til að fá hlaupabóluna
32 dagar til jóla
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.