Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Þetta er frábært...

Þetta er frábær frétt - stubbarnir ýta undir samkynhneigð LoL Vá hvað staða samkynhneigðra er langt á eftir miða við síðustu fréttir frá Póllandi og Rússlandi (Moskvu). Þetta er nú meira ruglið !!


mbl.is Pólsk yfirvöld rannsaka hvort Stubbarnir séu samkynhneigðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íþróttaleysi hjá Almari og sagan um Rauðhettu...

Jæja þá er komið að vikulegu bloggi mínu um börnin. Vikan er búin að vera fín, tíminn líður hratt og það er í rauninni alltaf helgi - ekki leiðinlegt.

Eins og flestir vita var Almar Þór í íþróttum á hverjum degi eftir skóla og nú er það allt búið í bili. Ég finn alveg svakalega fyrir því, því nú á hann erfitt með að sofna á kvöldin, þó hann sé á fullu allan daginn. Honum líður greinilega mjög vel þegar hann er líkamlega vel þreyttur.Sleeping

Berghildur Björt er svolítið svekkt yfir að vinir hennar, Ársæll, Tristan og Aron Óli, eru komnir yfir á Bláagarð en ekki hún. Ég held að það sé bara fínt fyrir hana að leika líka við einhverja aðra og viti menn hún byrjuð að velja sér að fara í pils og kjólaWink Ýmislegu átti ég von en .....

Í gærkvöldi lágum við BBE upp í rúmi og ég sagði henni söguna um hana Rauðhettu. Eitthvað gekk mér erfiðlega að segja hana því hún var í því að stoppa mig og mótmæla, sagði " nei mamma, þetta er ekki svona". Þetta fór ekki að ganga fyrr en ég sagði að mín saga hefði gerst á sunnudegi en sagan hennar á mánudegi. "óó - ég skil" sagði þá BBE og ég fékk að halda áfram með söguna Smile

E.s. hvernig væri nú að kvitta fyrir sig í athugasemdum eða gestabók?Smile


Kormákshlaup og tannleysi...

Í dag var Kormákshlaup (4 skipti af 4) og verðlaunaafhending. Almar var í fyrsta sæti í drengjaflokki fæddir árið 2000 og síðar. Hann er líka orðinn hálftannlaus, missti 3 tennur á 4 dögum!!! Almar tannlaus 002Almar tannlaus 003


Myndir

apríl 2007 004apríl 2007 005 Almar Þór og Fíasól

 

 

 

 

 

 

Berghildur Björt

 

apríl 2007 014 

Berghildur Björt og Hilmir Rafn

 


Hlaupabóla.....

Ég er svo heppin að börnin mín eru afskaplega hraust. Almar Þór hefur ekki misst dag úr skóla vegna veikinda (2x hálfan dag þegar hann var í leikskóla) og ég hef 2x þurft að ná í Berghildi Björt úr leikskóla vegna magaverkja. Þar af leiðandi álíta þau að veikindi séu frekar spennandi kostur- liggja upp í sófa og horfa á vídeo Wink . Í gær voru þau, ásamt fleirum börnum að leika sér út í garði og þau fara að tala um hlaupabólu... BBE spyr hvernig maður fái hlaupabólu og AÞE hélt því fram (til að stríða systur sinni) að til þess þyrfti að hlaupa mjög mikið og taka góða spretti. BBE var ekki lengi að fara af staða og hljóp eins hratt og hún gat, upp og niður götuna - til að fá hlaupabóluna Smile

Í Laugabóli á Laugarbakka...

Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir
Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir

... búa Guðbjörg Inga, Almar Þór og Berghildur Björt. Einnig eru Almar og Berghildur Björt svo heppin að eiga einn stóran bróður sem heitir Daníel Þór.

237 dagar til jóla

Bloggvinir

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • kettlingar 2008 011
  • kettlingar 2008 014
  • kettlingar 2008 016
  • kettlingar 2008 014
  • kettlingar 2008 012

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 501

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband